Þakplötur losnuðu af íþróttahúsinu Grundarfirði

Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út á Grundarfirði þegar þakplötur byrjuðu að losna af íþróttahúsi bæjarins. Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins, segir að björgunarsveitin sé komin ofan á þakið og byrjuð að reyna að festa þakplöturnar niður. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að ekki séu fleiri útköll í gangi vegna veðursins sem stendur. Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi.Veðurstofan varar sérstaklega við því að lausamunir gætu fokið. Búast má við rigningu og talsverðri úrkomu um tíma. Hvassasta veðursins er að vænta í Breiðafirði og verður appelsínugul viðvörun í gildi frá 16 til 20 á svæðinu.
Þakplötur losnuðu af íþróttahúsinu Grundarfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd