Mótmælendur í Frakklandi réðust inn í ráðhúsið í Marseille í dag. Fréttaveitan AFP greinir frá. Mótmælin hófust í byrjun mánaðar þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðbúnaðar í skólum.Áætlað er að hátt í 170 þúsund safnist saman í mótmælum í París, Marseille, Lyon og víðar um landið í dag.Grímuklæddir mótmælendur ruddust inn í ráðhúsið í Marseille í dag. Fréttamaður AFP segir nokkra þeirra hafa farið inn fyrir og einn þeirra krotað „A“-tákn anarkista á vegg áður en lögreglan greip inn í.„Við erum að taka Bastilluna,“ hrópaði einn mótmælandi og vísaði þannig til frönsku byltingarinnar árið 1789.Mikill hiti hefur færst í mótmælin undanfarna daga og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt til stillingar.