Menn sem útskrifuðust úr menntaskóla vorið 1960 sendu nafnlaust bréf á fjölmiðla þar sem þeir lýstu sprengingu Hafmeyjunnar í Tjörninni sér á hendur. Í síðasta þætti þáttaraðar Rásar 1 Hver sprengdi hafmeyjuna? er rætt við konu sem segir mennina hafa skrifað bréfið í gríni. Þeir voru algjörlega ótengdir sprengjuvörgunum, að hennar sögn.„Þetta var góður vinahópur á menntaskólaárunum. Sumir höfðu beittari húmor en aðrir og fengu þá flugu í höfuðið að skrifa og senda þetta bréf og þykjast vera sprengjumennirnir,“ segir konan, sem kýs að vera nafnlaus.„Þeir höfðu samt ekkert vit á list hvað þá að þeir vissu eitthvað um Nínu.“ SÚ EINA SEM ER Á LÍFI SEM VEIT ÞETTA Hafmeyjan var sprengd af skemmdarvargi eða -vörgum á nýársnótt 1960 eftir miklar deilur. Bréfið var sent fáeinum dögum síðar, því