Rigning, rok og milt hitastig munu einkenna veðurfar dagsins að mati veðurfræðings. Ekki ríki sérstök hætta vegna veðurs víðast hvar á landinu, en hann telur þó ástæðu til þess að halda sig innandyra þar sem veðrið verður hvað verst á landinu vestanverðu seinna í dag.