Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að hafa valdið tjóni í Hafnarfirði. Lögregla leitaði að bifreiðinni en þegar hún fannst í Garðabæ var ökumaðurinn á bak og burt og hafði fjarlægt númerin af bílnum. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. FLÚÐU FYRST Á BÍL OG TÓKU SVO TIL FÓTANNA Ökumaður í Kópavogi brást ekki við þegar lögregla gaf honum stöðvunarmerki. Upphófst eftirför þar sem bílstjórinn ók langt yfir hámarkshraða og yfir á rauðu ljósi. Þegar hann stöðvaði bílinn reyndi hann að stinga lögregluna af á tveimur jafnfljótum en var á endanum yfirbugaður. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum og dreifingu fíkniefna.Enn einn ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu í Fossvogi
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd