Stormasamt veður og viðvaranir víða

Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi.Lausamunir gætu fokið og búast má við rigningu og talsverðri úrkomu um tíma.Í Breiðafirði er hvassasta veðursins að vænta. Þar hefst gul viðvörun klukkan 11:00 en frá 16 til 20 er appelsínugul viðvörun á svæðinu.Á vef Veðurstofu Íslands segir að í Breiðafirði sé að vænta suðaustan- og sunnanáttar upp á 18-28 metra á sekúndu. Hvassast verði á Snæfellsnesi. Þar geti vindhviður farið yfir 40 metra á sekúndu, sem sé hættulegt fyrir ökutæki. „Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni,“ segir á vef Veðurstofunnar.Gular viðvaranir verða á höfuðborgarsvæðinu, í Faxaflóa, á Ströndum og Norðurlandi vestra, á miðhálendinu, í Breiðafir
Stormasamt veður og viðvaranir víða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd