Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti flóknu verkefni í álverinu í Straumsvík í nótt þegar kviknaði í vinnuvél inni í álverinu. Draga þurfti vélina úr álverinu áður en hægt var að slökkva eldinn að fullu því ekki má nota vatn við slökkvistarf inni í álverinu og hætta getur skapast vegna mikils rafmagnsstraums í mannvirkinu.Ekki liggur fyrir hvers vegna eldurinn kviknaði, segir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.„Þetta eru erfiðar aðstæður og erfitt að komast að þessu,“ segir Guðjón. „Það getur verið flókið.“Hann segir það hafa skipt sköpum að fá aðstoð starfsfólksins í álverinu sem þekki vel til aðstæðna.„Það þarf að hefta eldinn og draga vélina út og þar er hann endanlega slökktur,“ segir Guðjón. „Þetta er stórt hús, það getur verið svolítil leið að komast að
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd