Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi

Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eftir árásina. Lögregla í Svíþjóð segir ekki hægt að útiloka að fleiri en mennirnir tveir hafi verið að verki.Sænska ríkisútvarpið, SVT, greinir frá.Skotárásin var við Kämpetorpshöllina í Solberga í Älvsjö um níu leytið í gærkvöldi, þegar bæði var verið að leika fótbolta og handbolta á svæðinu.Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Eftir fjölda yfirheyrslna í nótt voru mennirnir tveir handteknir í morgun en þeir höfðu yfirgefið vettvanginn eftir árásina. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.Töluverður viðbúnaður var í nágrenni íþróttahallarinnar og stórt svæði í kringum hana girt af. Þá voru lestarferðir að Älvsjö-st
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd