Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.Þær beindust einna helst gegn orku- og varnarmálageirum landsins, Vladímír Pútín Rússlandsforseta og öðrum háttsettum embættismönnum, sem og gegn skuggaflota Rússlands. STUTT FRÁ SÍÐASTA SAMKOMULAGI Aðeins vika er síðan Trump gerði samkomulag við Pútín um afhendingu á 300 þúsund tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað. Einnig er gert ráð fyrir að Rússland afhendi að auki 500 þúsund tonn af dísil í nóvember og eina milljón tonna í desember.Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna veitti Rússum leyfi fyrir sölu, afhendingu, affermingu og innflutningi á dísilolíu frá Rússlandi fram til 7. apríl 2027.Í tilefni af samkomulaginu sagði Pútín í samtali vi