„Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis“, segir Mladen Zivanovic, viðmælandi Heimskviða, um komandi þingkosningar í Serbíu. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum lista.Eftir harmleikinn í borginni Novi Sad þann fyrsta nóvember 2024 burtust út mikil mótmæli. Þá létust 16 manns þegar þak á útisvæði við aðallestarstöðina í borginni hrundi. Sextán fórust, yngstu fórnarlömbin voru systurnar Sara, sex ára, og Valentina, tíu ára. Þær biðu með afa sínum eftir lest.Mótmælin sem fylgdu eru þau mestu í sögu landsins. Í marga mánuði kom fólk saman um land allt, stundum hundruð þúsunda í einu.Mótmælendur skell