Glæsihýsi sem metin eru á milljónir bandaríkjadala urðu gróðureldum að bráð sunnan við Los Angeles í gær.Eldarnir hafa sviðið tæpa 190 hektara á skömmum tíma en þeir eru sagðir hafa magnast hratt upp vegna þess hve vindasamt er á svæðinu. Þá er einnig afar þurrt en hitastig hefur víða farið upp í 39 gráður. Fleiri eldar hafa geisað í nágrenni Los Angeles í vikunni.Fólk hefur verið beðið um að halda sig frá svæðinu á meðan slökkvilið reynir að hafa hemil á útbreiðslu gróðureldanna. Þá eru tugir þúsunda án rafmagns en straumur var tekinn af rafmagnslínum til að draga úr líkum á því að rafneistar geti borist með vindinum.AP / Jae C. Hong