Sóttvarnarstofnun Afríku segir óvíst hvert fé sem ráðstafa átti til viðbragða við ebólufaraldrinum hafa ratað. Upphæðin hleypur á 700 milljónum dala, sem jafngildir um 85 milljörðum íslenskra króna.Reuters hefur þetta eftir stofnuninni og kongólskum heilbrigðisyfirvöldum sem kalla eftir auknu gagnsæi í kringum sjóði hjálparsamtaka. Helstu áhyggjur þeirra eru að málið geti valdið vantrausti sem leiði til þess að dregið verði úr nauðsynlegum stuðningi til að takast á við faraldurinn.Ekki er vitað hvort víðtækur fjárdráttur hafi átt sér stað en hins vegar þykir greinilegt að efla þurfi eftirlit með skráningu fjárhagsupplýsinga hjálparsamtaka.Ebólufaraldur hefur geisað í Afríku, ekki síst í Kongó og Úganda, en tilvik hafa einnig komið upp í Kenía.EPA / DANIEL IRUNGU