Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár

Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.Niðurstöður skýrslunnar þykja jákvæðar fréttir fyrir forsetann Luiz Inacio Lula da Silva aðeins örfáum dögum áður en kosningar um forsetaembættið verða haldnar í landinu. Afar mjótt er á mununum á milli Lula og mótframbjóðanda hans, Flávio Bolsonaro. EYÐING SKÓGARINS DRÓST SAMAN UM 42% Á MILLI ÁRA Frá ágúst 2025 til júlí 2026 voru 3325 ferkílómetrar af skóglendi ruddir. Það er samdráttur sem nemur tæpum 42% frá árinu áður og er umfangsminnsta skógarhöggið síðan mælingar hófust árið 1988.Þegar Lula bauð sig fram til forseta hét hann því að binda endi á ólöglegt skógarhögg í Brasilíu af völdum stórgripabænda og fyrirtækja sem stunda ólöglegan námugröft.Eyðing regnskóganna
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd