25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi

25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.Íþróttaleikir voru í gangi í nokkrum sölum íþróttahallarinnar, Kämpetorpshallarna, þegar skotunum var hleypt af. Þar á meðal var vel sóttur fótboltaleikur. Fjöldi manns var því á staðnum og nokkurn tíma tók að rýma húsið.Árásarmaðurinn komst undan áður en lögreglu bar að en leit að honum stendur enn þá yfir.Sænskir lögreglumenn. Myndin tengist fréttinni ekki beint.TT NEWS AGENCY / EPA
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd