Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum

Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur og ljóst þykir að skólastofa þeirra var skotmark hans. Þrjú börn, 5, 8 og 11 ára gömul, létust og 25 ára gamall kennari.Samkvæmt lögregluyfirvöldum á staðnum hét árásarmaðurinn Griffin John og var hann áður nemandi með sérþarfir við skólann. Hann var þó ekki skráður í neinn skóla á svæðinu þegar árásin var gerð.John braut sér leið inn í bygginguna með því að skjóta á læstar dyr með haglabyssu og hélt rakleiðis að stofunni sem hýsti kennslu fyrir börn með sérþarfir. HLÉDRÆGUR EINFARI John bjó einn með móður sinni og lýsa nágrannar hans honum sem hlédrægum einfara sem gekk ætíð í svörtum fötum og þagði þegar kastað var á hann kveðju. Þeir seg
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd