Ekki liggur fyrir hvenær frumvarp um gjaldtöku vegna flýti- og umferðagjalda verður lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.Til hefur staðið í þó nokkurn tíma að leggja á slík gjöld og áætlað er að þau skapi 143 milljarða króna í tekjur. Gert er ráð fyrir því að gjöldin leggist á frá og með árinu 2030 og er þeim ætlað að greiða fyrir um helming af framkvæmdum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. ÆTLAÐ AÐ DRAGA ÚR ÁLAGI Á HÁANNATÍMA Í fyrirspurn sinni spyr Guðlaugur af hvaða framkvæmdum veggjöld verði innheimt. Ekki kemur fram í svari ráðherra á hvaða svæðum slík gjöld verða rukkuð.Flýti- og umfe