Spéfuglinn Ari Eldjárn mun troða upp í hinu sögufræga samkomuhúsi Konunglega leikhúsinu við Kóngsins nýjatorg, eða Det Kongelige Teater, hinn 25. október. Þar verður hann með uppistand og fer lítt troðnar slóðir fyrir uppistandara með því að velja þessi virðulegu húsakynni.