Miðað er við að rukkaðar verði 200 til 300 krónur í flýti og umferðargjöld fyrir umferð um ákveðin svæði innan borgarinnar á háannatíma og 50 eða 100 krónur þess utan. Gert er ráð fyrir því að gjöldin leggist á frá og með árinu 2030 og er þeim ætlað að greiða fyrir um helming af framkvæmdum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.Til hefur staðið í þó nokkurn tíma að leggja á slík gjöld og áætlað er að þau skapi 143 milljarða króna í tekjur. Í svari sínu segir ráðherra að gert sé ráð fyrir að eitt gjald sé innheimt á klukkustund og að gjaldfrjálst verði um helgar og á rauðum dögum.