Litli spítalinn ehf. hefur tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar.Sjúkratryggingar eru að kanna hvort fýsilegt sé að gera samning um rekstur nýrrar bráðadeildar. Markmiðið er að létta álagi á bráðamóttöku Landspítala.Sjúkratryggingar upplýstu heilbrigðisráðuneytið um ósk Litla spítalans um smáslysamóttöku því erindi um slíkt hefur ekki áður borist. Slík þjónusta hafi áður verið veitt innan spítala, segir Sigurður Helgi Helgason forstjóri. Litli spítalinn óskaði eftir heildstæðum samningi sem er í samræmi við stefnu Sjúkratrygginga um að semja við stærri aðila.„Við viljum styðja við kerfið og létta