Flugi Icelandair (ICE825) sem var á leið til Nashville hefur verið beint til Halifax í Kanada vegna mikils mótvinds. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að þar sem mikill mótvindur hafi verið á leið vélarinnar hafi verið nauðsynlegt að taka eldsneytisstopp í Halifax. Þetta verði til þess að lendingu í Nashville seinki. Mynd úr safni.RÚV / Kristófer Óli Birkisson