Ætla að sækja flothring af sjókví úr fjörunni við Patreksfjörð í næstu viku

Arctic Fish ætlar að fjarlægja sjókví úr fjöru í Patreksfirði í næstu viku eftir rúman mánuð í fjöruborðinu. Reglulega berast tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki vegna siglingahættu. FLOTHRINGUR Á REKI GETUR HVOLFT BÁTUM Einar Helgason formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum segir flothringina stór og þung fyrirbæri sem sjáist illa í sjó og séu sérstaklega hættuleg smábátum þegar þau eru á reki. „Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring,“ segir Einar. HEFUR LEGIÐ Í FJÖRUNNI Í MÁNUÐ Um miðjan september rak flothring af sjókví á land í sunnanverðum Patreksfirði. Hann var ekki í notkun, á honum voru engin net og enginn fiskur hafði verið í kvínni. Hann losnaði vegna veðurs og rak upp í fjöru. Hringur
Ætla að sækja flothring af sjókví úr fjörunni við Patreksfjörð í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd