Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur rekið Katie Zacharia, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, úr starfi sínu eftir að hún hafði einungis sinnt því í fimm daga.Það var bandaríski fjölmiðillinn New York Times sem greindi fyrst frá þessu. Fulltrúar Hvíta hússins hafa staðfest þetta við aðra fjölmiðla.Zacharia átti ekki óskabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund á þriðjudaginn þar sem hún meðal annars ruglaðist á eiginmanni sínum og Trump forseta.Zacharia, sem tók við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um stundarfjórðung.Í umfjöllun New York Times segir að Trump hafi áður stungið upp á því að hún endurhugsaði starf sitt. Hann hafði í fyrstu stutt við hana eftir frumraunina. Samstarfsme