Stjórn Norðurorku samþykkti í vikunni að hækka verð á hitaveitu, rafveitu og fráveitu um fimm til sjö prósent. Norðurorka er í eigu sveitarfélaganna við Eyjafjörð, sem samþykktu nýverið að halda aftur af gjaldskrárhækkunum til að stemma stigu við verðbólgu.Hækkun upp á 5,5% fyrir hitaveitu, 5% fyrir rafmagn, 7% fyrir fráveitu og 2,5% fyrir vatnsveitu – það eru þær gjaldskrárhækkanir sem eru fram undan við Eyjafjörð, að óbreyttu.Norðurorka er í ríflega 98% eigu Akureyrarbæjar. Hin sveitarfélögin við Eyjafjörð eiga flest vel undir einu prósenti í félaginu. Stjórnarmenn tókust á um hækkanirnar á síðasta fundi en þær voru þó samþykktar af meirihlutanum, sem sagði ekki hjá þeim komist vegna stórra fjárfestinga sem væru fram undan.Minnihlutinn minnti á að 2,5% þak á gjaldskrárhækkunum hefði veri