„Heppni að enginn skyldi kubbast hérna í sundur hreinlega“

Hjónin Ásta Gunna Kristjánsdóttir og Steinarr Steinarsson eiga hús á Siglufirði og hafa átt það í sextán ár. Húsið skemmdist mikið í óveðrinu á miðvikudaginn. Þau voru stödd á heimili sínu í Hafnarfirði þegar nágrannakona hringdi í þau og sagði þeim að það hefði orðið tjón á húsinu þeirra.„Ég heyri bara, Jesús minn – þetta er hræðilegt,“ segir Ásta. „Og þá segir hún, það er bara allt brotið hérna inni. Bara gæti ekki verið verra ástand. Maður stendur hérna úti og dettur ekki í hug að þetta sé svona slæmt ,“ segir Ásta um símtalið sem hún fékk frá nágrannakonu sinni. EKKI SPURT AÐ LEIKSLOKUM EF ÞAU HEFÐU VERIÐ Í HÚSINU Ljóst er að tjónið er mikið og voru matsmenn frá tryggingarfélögum að meta húsið þegar fréttastofu bar að garði í dag.Ásta telur að ekki hefði þurft að spyrja að leiksloku
„Heppni að enginn skyldi kubbast hérna í sundur hreinlega“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd