Fyrirkomulag sem „hljómar náttúrlega galið núna“

Viðbótarfjármagnið sem á að renna til námsgagna er aðeins lítið brot af þeirri innviðaskuld sem ríkir í málaflokknum. Samkvæmt útreikningum sérfræðings hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir nokkrum árum þarf 5,5 milljarða til að vinda ofan af uppsöfnuðum skorti.Þetta kom fram í Síðdegisútvarpinu í gær. Þar voru Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, og Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, til viðtals um stöðu námsgagna á Íslandi.Þau telja tímabært að endurskoða núverandi kerfi námsgagnaútgáfu á Íslandi. Ríkiseinokun á útgáfu námsgagna til grunnskólastigsins hafi kannski þótt eðlileg fyrir tæpum hundrað árum, en sé það ekki lengur í dag.Ríflega fimm milljarða króna þarf til að vinda ofan af uppsöfnuðum skorti námsgagna í íslenska skólakerfinu. Fram
Fyrirkomulag sem „hljómar náttúrlega galið núna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd