Sálfræðingafélag Íslands telur stöðu sálfræðiþjónustu á endurhæfingarmiðstöðinni Reykjalundi alvarlega. Missir á reynslumiklu starfsfólki og langtímaveikindi starfsfólks hafi skapað aðstæður þar sem mikið álag hvíli á þeim sem enn eru við störf.Fella hefur þurft niður ýmsa lykilþætti í þjónustu við fólk sem leitar til Reykjalundar.„Með uppsögnum lykilstarfsfólks hefur tapast mikil reynsla og sérhæfð þekking sem byggst hefur upp undanfarna áratugi. Þá er starfsfólk í langtímaveikindum vegna álags og óheilnæms húsnæðis,“ segir í tilkynningunni.Meira 111 milljónir söfnuðust til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni í landssöfnun fyrr í mánuðinum. Markmiðið var að safna 100 milljónum til að tryggja endurbætur á sjúkraþjálfunarálmu miðstöðvarinnar.Heildarviðhaldsþörf Reykjalundar er þó talin um 2 m