Forstjóri CCEP á Íslandi, Anna Regína Björnsdóttir, segir að fyrirtækið hafi orðið vart við ýmislegt á drykkjarvörumarkaðnum á Íslandi sem hafi vakið spurningar um heilbrigða viðskiptahætti. Fréttastofa leitaði eftir viðbrögðum CCEP, sem áður hét Vífilfell, við rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Ölgerðinni og meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu.Vífillfell er framleiðandi kók á Íslandi og Ölgerðin er með pepsí. Samkeppni fyrirtækjanna í gegnum áratugina hefur hverfst um þessa tvo drykki sem verið hafa þeirra helstu tákn.Anna Regína segir meðal annars um rannsóknina í svörum sínum í tölvupósti: „Við viljum heilbrigða og virka samkeppni á markaði og teljum það alvarlegt ef fyrirtæki fara ekki að lögum og reglum. Við treystum því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiði í ljó