Landtökufólk réðst á fjölmiðlakonu við störf

Bandarísk fjölmiðlakona var barin við störf á Vesturbakkanum í Palestínu í dag. Grímuklæddir menn réðust að henni vopnaðir prikum.Heidi Levine var að mynda fyrir bandaríska miðilinn Washington Post í umfjöllun um ofbeldi landtökufólks gegn palestínskum ólífubændum. Hún ræddi við fréttamenn úr sjúkrarúmi í Ramallah og segir fleiri en fimmtíu grímuklædda landtökumenn hafa ráðist á sig vopnaða prikum. VAR MERKT Í BAK OG FYRIR Levine segist hafa legið á jörðinni á meðan höggin dundu á henni í um tíu mínútur og hún hafi reynt að halda í myndavélina og töskuna sína. Washington Post segir Levine hafa verið í merktu vesti, bæði að framan og aftan.Samtök erlendra blaðamanna greina frá því að árásarmennirnir hafi stolið vegabréfi, síma og búnaði frá Levine.Samtökin segja árásina eina af mörgum á
Landtökufólk réðst á fjölmiðlakonu við störf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd