Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur óskað eftir frekara samráði við fulltrúa minnihluta á Alþingi um byggðahluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Hann biður um beinar tillögur frá stjórnarandstöðunni.Nokkuð ósætti hefur verið á Alþingi um málið og telja formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar að innviðaráðherra hafi grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í september. Útgerðir sem orðið hafa fyrir skerðingu vegna breytinganna hafa sagst uggandi yfir 50% lækkun frá síðasta ári.Í reglugerð sem innviðaráðherra gaf út í september nemur lækkun aflamarks til byggðakerfisins alls 5,8%.Línuívilnun hefur fram að fiskveiðiárinu 2018/19 nær alltaf miðað við 3375 tonn af þorski. Á fiskveiðiárinu 2018/19 var hún lækkuð í 3000 tonn og svo í 2000 tonn árið efti