„Ég hefði auðvitað kosið að þeir væru skuldbundnir sínum flokki“

Forsætisráðherra segir leitt að sjá á eftir Jóni Gnarr úr ríkisstjórninni en að brotthvarf hans hafi engin áhrif á samstarf ríkisstjórnarflokkanna. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar en styður ríkisstjórnina.„Mér finnst auðvitað leiðinlegt að sjá á eftir Jóni. Hann var góður liðsfélagi,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.Jón Gnarr er annar þingmaðurinn sem segir sig úr þingflokki í ríkisstjórn Kristrúnar. Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr Flokki fólksins fyrr á árinu.Kristrún segir brotthvarf Jóns ekki hafa áhrif á samstarf ríkisstjórnarflokkanna.„Ég ætla ekki að gera lítið úr því að það er leitt að sjá á eftir fólki. Báðir þessir aðilar, Guðmundur Ingi og Jón Gnarr, voru aðilar sem mér þykir vænt um og þótti gott að vinna með og mun áfram þykja gott að vinna með
„Ég hefði auðvitað kosið að þeir væru skuldbundnir sínum flokki“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd