Landsbjörg og ríkisstjórnin skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að ljúka smíði 16 björgunarskipa á næstu árum. Undirritunin átti sér stað við opnun ráðstefnunnar Björgun 26 sem haldin er í Hörpu um helgina.Ríkið hefur stutt við verkefnið fram til þessa með 50% framlagi í hvert skip. Fyrir lá viljayfirlýsing um aðkomu ríkisins að tíu skipum og með undirrituninni í morgun tryggir ríkið aðkomu sína að síðustu þremur björgunarskipunum.„Við sjáum nú loks til lands í því risastóra verkefni,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Hann segir endurnýjun skipaflotans stærsta verkefni sem frjáls félagasamtök hafi farið af stað með.Átta skip eru þegar komin til landsins og segir Jón Þór að þau hafi þegar sannað gildi sitt.„Það er nauðsynlegt að klára þetta verkefni og það er því mj