Óvissustig vegna skæðrar fuglaflensu

Matvælastofnun leggur áherslu á að fuglaeigendur hugi vel að smit- og sóttvörnum svo að fuglaflensa berist ekki í dýr í haldi. Skætt afbrigði hennar hefur greinst í villtum fuglum víða um land að undanförnu. Afbrigðið greindist í villtum spendýrum og köttum á Íslandi í fyrra.Fuglainflúensa hefur greinst í mávategundum og öndum í þremur landshlutum síðustu vikur. Beðið er eftir niðurstöðum úr frekari rannsóknum.Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir ástæðu til að fylgjast vel með fuglum, villtum spendýrum og köttum. Það eru þrjú viðbúnaðarstig og nú er óvissustig.„Óvissustig er fyrsta stigið og það þýðir að það eru taldar miðlungslíkur á að smit geti borist í alifugla eða aðra fugla í haldi eða spendýr,“ segir Þóra.Mikilvægt er að veikin berist ekki í fugla í haldi. Þar skiptir miklu
Óvissustig vegna skæðrar fuglaflensu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd