Þrjú kvöld í röð hefur slegið í brýnu milli lögreglu og mótmælenda í Albaníu. Að minnsta kosti 160 voru handteknir í gær. Mótmælendur hafa ráðist að opinberum byggingum og krefjast afsagnar stjórnvalda.Mótmælendur hafa kveikt í opinberum byggingum og beint spjótum sínum að ráðuneytum. Þessi mótmælaalda hófst í háskólum þar sem nemendur kröfðust afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama vegna lélegra aðstæðna í skólum og hárra skólagjalda.Minnst 160 voru handteknir í mótmælum í Albaníu í gær. Mótmælendur krefjast afsagnar forsætisráðherra. Þetta var þriðja róstursama kvöldið í röð og mótmæli dagsins eru þegar hafin.„Landið okkar þarf stillingu, meira en nokkru sinni fyrr. Við þurfum samtal og ábyrgð. Við megum ekki láta ofbeldi sundra okkur, frekar þurfum við að hlusta hvert á annað og finna lau