Ræða Mark Carneys í Davos á fundi World Economic Forum í janúar markaði alger tímamót í alþjóðakerfinu. Boðskapur Carneys var sá að meðalstór ríki ættu að tengjast betur og fylla með því í það valdatóm sem væri að myndast í heiminum. Um leið hefur Kanada átt í hörðum deilum við sína nánustu nágranna, Bandaríkin, á viðskiptasviðinu allt frá því Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna í ársbyrjun 2025.Miklar sviptingar hafa reyndar orðið í tollamálunum og skeyti gengið á víxl. Deilan hefur harðnað frekar en hitt og flestar boðaðar tollahækkanir tekið gildi.Utanríkisstefna Kanada hefur tekið miklum breytingum á þessu ári í kjölfar deilna við Bandaríkin og umróts í alþjóðamálum.Bandaríkin hafa lagt 50% tolla á stóran hluta kanadísks útflutnings, Kanada hefur svarað með sams ko