Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist hlusta á gagnrýni Jóns Gnarr á forystu flokksins, en ætlar ekki að eiga í orðaskiptum við hann um það sem hann segir óheilbrigðar aðstæður. Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í gær en styður ríkisstjórnina.„Það að vera í forystu á flokki er í fyrsta lagi ekki sjálfgefið og við þurfum alltaf að hugsa ýmislegt þegar við erum í forystu á flokki. Ég heyri hvað Jón segir og auðvitað bara mun ég taka það áfram innan flokksins. En um leið þá er ég líka mjög þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef fengið í gegnum tíðina með ítrekuðum endurkjörum,“ segir Þorgerður Katrín um gagnrýni Jóns á forystu flokksins.Spurð sérstaklega út í ummæli hans um óheilbrigðar aðstæður segir Þorgerður:„Ég ætla ekki að standa í orðaskiptum við Jón. Ég bara be