Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru í dag dæmdir í sjö ára fangelsi fyrir aðild sína að Dettifossmálinu. Þetta staðfestir Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars.Alls voru fjórir ákærðir í málinu fyrir innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips.Tveir menn sem voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp, Magnús Gauti Magnússon og Björgvin Þór Björnsson, hlutu fimm ára dóm fyrir sína aðild að málinu.Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því ekki hægt að segja til um forsendur hans.Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl.Amfetamínbasinn var 47-48% a