Fanney Birna Jónsdóttir hefur tekið við nýrri stöðu hjá Ríkisútvarpinu og er nú dagskrárstjóri útvarps – eftir að stöður dagskrárstjóra Rásar 1 og Rásar 2 voru sameinaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra um breytingar á stjórnun og skipulagi í dagskrárdeildum útvarps.Markmiðið er „að þétta og styrkja ritstjórnarlegt starf og samvinnu allra sem starfa við útvarp og skerpa á stjórnunarlegum þáttum“.Fimm munu þar að auki gegna hlutverki ritstjóra – Anna Marsibil Clausen hlaðvarpsritstjóri, Erla Björg Gunnarsdóttir menningarritstjóri og Baldvin Þór Bergsson ritstjóri fréttatengdrar dagskrár. Bergljót Anna Haraldsdóttir verður tónlistarstjóri ásamt Andra Frey Viðarssyni, sem leysir af Matthías Má Magnússon.Stefán telur breytinguna styrkja stöðu beggja útvarpsrás