Stormur um allt land um helgina

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hvassviðris, storms og roks um helgina. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og miðhálendinu á morgun. Verst verður veðrið við Breiðafjörð. Þar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun því þar er útlit fyrir rok, næsta stig fyrir ofan storm.Gul viðvörun hefur verið gefin út á öllu landinu vegna hvassviðris eða storms á sunnudag. Ekki er nóg með að það hvessi um allt land heldur er líka útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands. Viðbúið er að aðstæður til ferðalaga geti versnað því vindur getur farið yfir 40 metra á sekúndu í hviðum.
Stormur um allt land um helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd