Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að skrapa vefi sem tengdir eru fyrirtækjareikningum.Með því að hafa fyrirtækjareikning hjá Meta veita fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar samfélagsmiðlarisanum aðgang að efni á vefjum sínum.Þessir nýju notendaskilmálar gildi á miðlum Meta 30. október. Á sama tíma tekur nýtt áskriftarmódel Meta gildi – sem notendur síðna verða að kaupa sér til að geta dreift fleiri en tveimur hlekkjum frítt á mánuði.Fyrirtækjareikningarnir gera fyrirtækjum og opinberum persónum kleift að stýra Facebook-síðum, spjallþráðum í Messenger, Instagram-reikningum og WhatsApp-þráðum á einum stað.Líklegt er að öll stórtæk fyrirtæki á samfélagsmiðlum séu með fyrirtækjareikning. Eins og nýju skilmálarnir eru orðaðir þá getur Meta fært rök fyrir því