Sprengjuhótanir voru sendar á nokkrar ríkisstofnanir og fyrirtæki í vikunni. Lögreglan telur ekki þörf á að bregðast við hótununum. Þær bárust í tölvupósti frá sama netfanginu. SPRENGJUHÓTANIR AFAR SJALDGÆFAR Tölvupóstur með sprengjuhótunum barst dóms- og forsætisráðuneytinu fyrr í vikunni og sprengjusveit var kölluð út til að meta aðstæður. Hótanirnar bárust í tölvupósti sem skrifaður var á einfaldri ensku og sendur á almennt netfang ráðuneytanna.„Ráðuneytinu barst hótun á miðvikudagsmorgun. Farið var eftir verkferlum og á endanum var niðurstaðan sú að ekki var þörf á frekari viðbrögðum,“ segir Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins.Hann segir hótunina ekki hafa raskað starfi í ráðuneytinu en segir það ekki til opinberrar birtingar hvað felist í verkferlum sem