Stofnmæling botnfiska að haustlagi, oftast nefnd haustrall, hófst 29. september síðastliðinn og er nú um það bil hálfnuð. Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að tvö skip taki þátt í verkefninu, rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF-200 og togarinn Breki VE-61.