Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof

Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál.Tígrisdýr í dýragarði í Nýju-Delí á Indlandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.EPA / RAJAT GUPTABreska ríkisútvarpið hefur það eftir vitnisburði réttarmeinafræðings að maðurinn, hinn tuttugu og fjögurra ára gamli William Chapman, hafi verið greindur með geðklofa og vitað sé að hann oftar en einu sinni farið í geðrof.Fjölskylda Chapmans hafði ítrekað viðrað áhyggjur sínar af ástandi hans við heilbrigðisþjónustu í heimabæ þeirra Doncaster en hann var metinn í nógu góðu jafnvægi til að þurfa ekki á sérstakri umönnun að halda.
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd