Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín

Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar árásir Úkraínu á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi „hneisu“. Þetta sagði forsetinn fyrir skemmstu í viðtali hjá fréttamiðlinum Newsmax.Þar sagði hann enn fremur að Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu væri ekki jafn viljugur til að leita leiða til að binda enda á stríðið og Vladimir Pútín Rússlandsforseti.„Ég held að mér þyki Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín,“ sagði Trump.Zelensky sagði í viðtali við Piers Morgan í fyrradag að það væri sárt að horfa upp á Donald Trump Bandaríkjaforseta velja sér aðra samherja en Úkraínu. Þau ummæli lét hann falla í kjölfar kaupa Bandaríkjanna á rússneskri olíu.Þá hefur Zelensky lýst því afdráttarlaust yfir að hann muni ekki virða kröfu bandarískra stjórnvalda um að Úkraína láti olíuhreinsistöðvar Rússlands í friði
Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd