Fimm menn voru handteknir nærri Björgvin í Noregi á miðvikudaginn og hafa þeir verið ákærðir fyrir fjársvik gagnvart Atlantshafsbandalaginu.Mennirnir starfa allir hjá sama fyrirtækinu en rannsóknarlögregla efnahagsbrota í Noregi, Økokrim, telur að þeir hafi ofrukkað NATO fyrir þjónustu við herskip í norskum höfnum á tímabilinu 2021–2025. Frá þessu greinir norski ríkismiðillinn NRK.Upphæðin sem þeir eru taldir hafa svikið út nemur að minnsta kosti einni milljón evra, sem jafngildir rúmum 136 milljónum íslenskra króna. HAFA RANNSAKAÐ MÁLIÐ SÍÐAN 2023 Innkaupastofnun NATO, NSPA, hafði ástæðu til að gruna að maðkur væri í mysunni og hóf rannsókn á því árið 2023 hvort fyrirtæki gæti verið að senda þeim ranga reikninga.Rannsókn þeirra leiddi til lögregluaðgerða árin 2024 og 2025 og mennirnir