Landsréttur ómerkti 14,7 milljóna bótadóm

Landsréttur ómerkti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði gert Verði tryggingum að greiða manni rúmlega 14,7 milljónir króna auk vaxta vegna umferðarslyss, að frádreginni fyrri greiðslu upp á tæpar 9,8 milljónir. Málinu var vísað aftur til héraðsdóms þar sem hvorki hafði verið tekin afstaða til aðalkröfu mannsins né fyrstu varakröfu hans.
Landsréttur ómerkti 14,7 milljóna bótadóm

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd