Annar ársfjórðungur í rekstri Haga hf. var umfram væntingar og afkomuspá fyrir rekstrarárið 2026-2027 hefur verið hækkuð um 800 milljónir króna. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins á öðrum ársfjórðungi sem birt var í dag.„Vörusala samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi nam 54,7 milljörðum króna og jókst um 5,5% frá fyrra ári,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Haga í fréttatilkynningu.Heimsóknum í dagvöruverslanir Haga á Íslandi fjölgaði um 3,2% á milli ára og seldum stykkjum um 1,3%. „Smávægilegur samdráttur var hjá Hagkaup en góður vöxtur hjá Bónus,“ segir í tilkynningunni.Þá gekk rekstur Olís betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Áhrif hærra heimsmarkaðsverðs á olíu gengu að hluta til baka á öðrum fjórðungi en þó minna en gert var ráð fyrir.Seldum eldsneytislítrum fækkaði um rúm 11%, m.a. vegna