Skotárás í grunnskóla í Oregon

Nokkrir eru særðir og í það minnsta einn látinn eftir skotárás á skóla í Oregon-fylki í Bandaríkjunum í kvöld. Að minnsta kosti tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús til aðhlynningar. Mikill viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og var árásarmaðurinn skotinn til bana á vettvangi. Skotárásin varð í Rail-grunnskóla nærri Portland en í hann ganga börn á aldrinum 5-11 ára. Lögregla hefur ekki gefið upp neinar upplýsingar um árásarmanninn. AP/FR159178 AP / Joe Kline
Skotárás í grunnskóla í Oregon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd