Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þekkt hérlendis. Flutti hann efnið inn frá Tékklandi, þaðan sem hann er, og að hans sögn til eigin nota.