Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði

Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Líklegt er að ef af áformunum yrði myndu skapast 10 til 15 störf á staðnum.Hjá Kaldvík starfa alls um 200 manns, þar af um 130 á Austfjörðum og við það bætast afleidd störf, til dæmis í flutningum og viðhaldi. Samkvæmt mati Byggðastofnunar frá 2017 skapast að meðaltali 0,8 afleitt starf fyrir hvert beint starf í fiskeldi á Íslandi.Við laxeldi, eins og það sem til stendur að byggja upp í Seyðisfirði, verða til um það bil tíu störf. Sjálfvirkni hefur aukist í fiskeldi en Kaldvík segir viðbúið að störfum haldi áfram að fjölga á meðan vöxtur sé í greininni.Samtals hefur Kaldvík leyfi fyrir 53.800 tonna fiskeldi á Austfjörðum en er með um 15.000 ton
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd