Jón Gnarr þingmaður segir að langvarandi skortur hafi verið á skýrri forystu innan þingflokks Viðreisnar.Hann sagði sig í dag úr þingflokki Viðreisnar. Hann ætlar eftir sem áður að styðja ríkisstjórnina og starfa með henni á þingi. Hann var gestur Kastljóss í kvöld.Nokkrir dagar eru síðan Pawel Bartoszek tók við þingflokksformennsku. Flokkurinn hafði verið án þingflokksformanns frá upphafi þingvetrar eða síðan Sigmar Guðmundsson fór í veikindaleyfi. FORYSTA FLOKKSINS EKKI TEKIÐ ÁBYRGÐ Jón ítrekar að hann kunni vel við fólkið í flokknum og fari ekki með gremju út úr þingflokknum.„Mér finnst búinn að vera langvarandi skortur á skýrri forystu.“Jón segist ekki vera óánægður með skipan Pawels í embætti þingflokksformanns.„Ég var ósáttur við að það hafi ekki verið tekin ákvörðun. Ég vil taka